sunnudagur, júní 29, 2008

Hekla Berglind og Katla Bryndís


Hekla Berglind og Katla Bryndís
Originally uploaded by aceinn.

Well búinn að eiga frábæra og huggulega helgi heima hjá Birgittu og litlu prinsessunum Heklu og Kötlu. Ég passaði þær þegar mamman fór í vinnu og við skemmtum okkur konunglega.

Svo var ákveðið að taka nokkrar myndir og að sjálfsögðu skutluðu þær sér í Vals treyjurnar og tóku lagið fyrir afa sinn. Frábærir tónleikar áttu sér stað með hlátri og góðu tvisti. Sambasláttur af bestu gerð.

miðvikudagur, júní 25, 2008

Myndir frá Agli Rauða.

Fór á Kayakmót á Neskaupsstað og reyndi að læra nett á kayak. Síðan þá hef ég verið forfallinn kayak ræðari og er að fíla þetta í botn.

Glæsileg helgi og tók held ég um 1100 myndir eða svo. Hér er svo það sem er sýningarhæft eða réttara sagt það sem ég ákvað að væri sýningarhæft.