sunnudagur, febrúar 03, 2008

Laug Laxness


Laug Laxness
Originally uploaded by aceinn.

Púff ég fór aftur í gær að ná myndum af þessu hrikalega skemmtilega náttúrufyrirbrigði sem á vísun í Ásatrúnna.. sem segir að Valkyrjur eru að ferðast með fallna víkinga til Valhallar til að berjast þar við hlið Óðins. :)

Hið látlausa hús Laxness er þegar betur er að gáð.. hrikalega flott og útsýnið frábært.. og ekki skemmir að hafa svona laug í garðinum...

þessi helgi var frekar stór í myndatökum.. tók portrett myndir af meistarfloki Vals í handbolta kvenna.. (þá er einn hlutur af 6 búinn þar) miðbæjarröllt með hópnum í Workshoppinu sem ég var með... nokkrar myndir þar og svo föstudagskvöld Norðurljós á Reykjanesi og í gær norðurljós í mosfellsbæ, Kjósaskarði og Hvalfirði.

Frábært í alla staði og ekki hægt að bera þetta saman við rugl sódómu um helgar..
kíkið á flickr síðuna og sjáið fleiri myndir

laugardagur, febrúar 02, 2008

Kleifarvatn


Kleifarvatn
Originally uploaded by aceinn.

jæja, eftir nokkuð margar tilraunir undanfarin ár þá náði ég loks sæmilegri norðurljósamyndum í gær.. Ég og Villi tókum okkur til og rúlluðum að Kleifarvatni og skutum eins og mest við máttum.. helvíti gaman bara.

Annars er mikið búið að ganga á hjá mér.. og allt er þetta á réttri leið :) ég er semsagt búinn að ákveða að vinna á öðrum vettvangi en í múrnum og sótti ég um starf í útivistarbúðinni Ellingsen og skemmst er frá því að segja að ég er orðinn sölumaður ferðatækja i Ellingssen, þar sem ég ætla að leyfa mér að blómstra..