Prinsessur A og B
Prinsessur A og B
Originally uploaded by aceinn.
Ljósmynd: Rakel Rut Valdimarsdóttir
Vá hvað þetta er frábært. Stelpurnar eru um tuttugu tíma gamlar þarna og eru að virða fyrir sér mömmu sína í fyrsta sinn almennilega. þær eru svo sætar og flottar.
Nú er sú minni komin af vökudeild og allt í blóma, Birgitta þessi elska er svo flott með þær að maður klökknar bara við að horfa á hana með börnin sín. Þetta er frábært og þær eiga eftir að standa sig vel þessar elskur.
5 ummæli:
ohh þær eru svo æðislegar! :)
Elín
Sá þær live i dag, alveg dásamlega fallegar og fínar. Hlakka til að sjá meira af þeim og myndir afi gamli...við hér tölvudundarar heimtum fleiri myndir:) Og Birgitta ekkert smá flott i mömmuhlutverkinu, hún á eftir að rúlla þessu hlutverki upp:) kv.Pálina
Elsku Ási til hamingju með þessar gullfallegu prinsessur, þær eru alveg eins afinn... og til hamingju með nýja titilinn.
Kveðja, Ella á Akureyri
Pálína já það koma margar margar myndir af þeim :) og Birgitta er frábær í móður hlutverki.
Takk fyrir kveðjuna Ella, þessar elskur fá sko enga rúllupylsur hjá mér skal ég segja þér :) Bið að heilsa norður kv. Ási AFI haha mér finnst þetta æðislegt
Elsku Ási innilega til hamingju með afadæturnar tvær skilaðu kveðju til Birgittu. "langafinn og amman" í sveitinni
Skrifa ummæli