mánudagur, júlí 09, 2007

BRAND NEW....



Fór í hádeginu að skoða þennan nýfæddan fola, sem fæddist í morgun.

Hvað skyldi þessi litur heita? Brún skjöldóttur með hjálm á haus?? :)
Man eftir Roy Roger mynd þar sem einn Indiáninn var á svipuðum hesti.. svona grár með brúnan haus og brúnan skjöld...
Það var eiginlega minn uppáhalds karakter í myndunum þessi indiáni sem ég man ekki hvað heitir en hesturinn var flottur :)

Veit ekkert um svona byggingar en mér skilst að þessi hafi hörku vöðvabyggingu og flottan bóg!? Allavega er hann flottur þessi.

Merkilegt hvað maður verður hálf auðmjúkur að sjá svona nýtt líf í náttúrunni, að fylgjast aðeins með þeim uppgvötva þessar skrýtnu mannverur, vera forvitnar um steina og gras.. skemmtilegt :)

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Æi hvað menn eru nú eitthvað orðnir mjúkir....;)

Aceinn sagði...

:) jamm mjúkir menn eru víst í tísku........

.....svo hef ég alltaf verið mjúkur sko.....

Nafnlaus sagði...

hestar eru skjóttir ekki skjöldóttir helt að litir og gangtegundir væru grunnur hestamennskunar en þú ert nú þegar sá flottasti hehe

Aceinn sagði...

hey hvað veit ég maður.. skjöldótt er víst litur á beljum heheh svoleiðis var það í minni sveit.. og kannksi er þetta bara belja í felulitum..

hvað veit ég :)