fimmtudagur, mars 01, 2007

Englaský


Angel watching over Sodoma
Originally uploaded by aceinn.
Ég var á leiðinni heim í gær þegar ég sá þessi stórkostlegu ský koma með magnþrungum þunga yfir bæinn. Ef ég væri heittrúaður þá hefði ég tekið þessu sem "sign" um dómsdag eða eitthvað þvíumlíkt. :)

Ég var svo heppinn að vera með myndavélina í bílnum og skaut nokkrum skotum á leiðinni heim og þessi mynd er sú síðast í þeirri seríu og fannst mér hún vera svo lýsandi yfir þeirri tilfinningu sem ég fékk þegar ég sá þetta.

Magnað fyrirbæri og gaman að ná þessu á mynd.

Nokkuð margir sáu þetta og margar myndir voru teknar af þessu fyrirbæri og póstuðu þeir sínum afurðum á LMK.
http://ljosmyndakeppni.is/viewtopic.php?t=15044&postdays=0&postorder=asc&start=0

kíkið á þær

2 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Hæ hæ alltaf jafngaman að kíkja á myndirnar þínar, kem mjög reglulega hér inn að skoða.

Aceinn sagði...

:) hey takk fyrir það... ég hef ekki verið svo viss um að einhver nennti hingað inn hehe eins og þú hefur tekið eftir þá er ég ekki sá öflugast að blogga. Reyni frekar að skutla inn myndum á flickr síðuna þó svo ég sé ekkert hyper öflugur þar heldur.

En gaman að vita að því að þú kíkir hingað inn af og til. Bið að heilsa norður.